Verslunin á Nýbýlaveginum varð strax leiðandi verslun í byggingavöru þar sem seldar voru allar helstu byggingavörurnar á einum stað. Árið 1988 flutti verslunin í nýtt og rúmbetra hús í Breiddinni. Nokkru áður eða árið 1980 var stórt athafnasvæði fyrir timbursölu tekið í notkun við Skemmuveg í Kópavogi þar sem nú er Timbursala BYKO í Breiddinni.
BYKO í Hafnarfirði var opnað árið 1984. Verslun BYKO á Hringbraut var svo opnuð 1991. Árið 1995 var aðalskrifstofan flutt af Nýbýlaveginum inn í Breidd, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru nú.
Árið 1996 keypti BYKO rekstur verslunarinnar Járn og skip í Keflavík og hefur síðan rekið þar verslun undir nafninu BYKO Suðurnes. Árið 1997 keypti BYKO svo rekstur Metró að Furuvöllum á Akureyri. Þar er nú rekin timbursala, lagnadeild og leigumarkaður, en ný, 2.000 m² byggingavöruverslun var opnuð í nóvember árið 2000 í Glerártorgi á Akureyri.
Á þessum tíma starfrækti BYKO 7 byggingavöruverslanir, leigumarkað í Breidd og öfluga timbursölu. Á sérvinnsluverkstæði í Breiddinni eru unnin smærri verk eftir óskum viðskiptavinarins.
Í febrúar 1998 var opnuð stærsta raftækjaverslun landsins í verslunarkjarnanum Smáratorgi í Kópavogi. Verslunin heitir ELKO og er alfarið í eigu BYKO samsteypunnar.
Árið 2000 voru gerðar skipulagsbreytingar hjá BYKO hf. og tengdum fyrirtækjum til að skerpa sýn og gera fyrirtækin innan samsteypunnar betur í stakk búin til að takast á við framtíðina. Fram að þessu hafði BYKO hf. verið bæði rekstrarfélag um rekstur byggingavöruverslana og eignarhaldsfélag, en þar undir féllu ELKO ehf., BYKO Lettland ehf., Axent ehf. og Smáragarður ehf.
BYKO var því skipt upp í tvö sjálfstæð félög, annars vegar BYKO hf. með alla starfsemi er lýtur að rekstri byggingavöruverslana, og hins vegar Norvik hf., sem varð eignarhaldsfélag samsteypunnar.
Árið 2001 var tekið í notkun nýtt vöruhús fyrir starfsemi BYKO í Kjalarvogi við Sundahöfn. Nú er öll vöruhúsastarfsemi BYKO komin undir eitt þak í um 10.000 m² byggingu.
BYKO samsteypan hefur verið að hasla sér völl erlendis á síðari árum og rekur nú öflugt fyrirtæki í Lettlandi, BYKO-LAT. Þar er framleitt timbur og ýmsar timburafurðir, sem fluttar eru út til ýmissa Evrópulanda auk Íslands. BYKO-LAT er eitt af stærstu fyrirtækjum Lettlands í útflutningi á timbri. Árið 2003 opnaði glugga- og hurðarverksmiðja þar, en áður hafði sú starfssemi farið fram á Íslandi. Verksmiðjan framleiðir glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga. Árið 2003 var fyrirtækið Sia CED í Lettlandi keypt og jukust afköst í timburframleiðslu verulega við það.
Ný og endurbætt verslun í Breidd opnaði í september árið 2002 og er stærsta verslun sinnar tegundar á Íslandi. Í apríl árið 2003 opnaði ný og glæsileg verslun BYKO á Reyðarfirði og sama ár í júlí opnaði BYKO verslun á Akranesi þar sem áður var verslun trésmiðju Akurs.
Þann 26.júní 2004 opnaði BYKO verslun sína á Selfossi. Þetta er 4.400 m2 verslun og timburverslun með hlaðbraut (drive-through). BYKO Selfoss er stórglæsileg verslun og er hún mjög lík í útliti og verslun BYKO í Breidd.
Þann 1. júlí 2006 sameinaði BYKO verslun og timbursölu á Akureyri undir einu þaki við Óðinsnes 2. Þar var opnuð stórglæsileg 6500 fermetra verslun með timbursölu, lagnadeild og leigumarkaði. Timbursalan er stórglæsileg með hlaðbraut (drive-through), þannig að hægt er að fá timbur og aðrar byggingavörur afgreiddar beint á bílinn innandyra. Þann 27. mars 2009 opnaði svo 500 fermetra Intersport verslun inn í BYKO AKureyri.
Stærsta byggingavöruverslun landsins opnaði í Kauptúni í Garðabæ þann 9. nóvember 2007. Sú verslun tók við af verslun BYKO í Hafnarfirði sem lokaði í síðasta sinn þann 8. nóvember eftir að hafa þjónað Hafnfirðingum og Garðbæingum ásamt öðrum landsmönnum vel í 23 ár. Verslun BYKO í Kauptúni er samtals tæpir 13.000 fermtrar og er öll hin glæsilegasta.
Nýjasta verslun BYKO opnaði á Grandanum í Reykjavík þann 24. apríl 2008. Hún leysti af verslun BYKO á Hringbraut. Þessi glæsilega verslun er um 4.500 fermetrar og er hönnuð sérstaklega með markaðssvæði sitt í huga, að þjóna fyrst og fremst viðhaldsmarkaði.