Veist þú muninn?
“Glerungur” ekki vax.
UltraGlozz er hvorki vax né silikon, það flokkast undir efni sem á ensku er kallað “paint sealant”. Í bókstaflegri þýðingu merkir orðið “lakk innsiglir”, sem við köllum í frjálsri þýðingu, “lakkbrynju”, því yfirborð lakksins er hreinlega innsiglað gegn utanaðkomandi veðrunar-áhrifum og óhreinindum.
Sterkasta handbónið á markaðnum.
Grunnefnið í UltraGlozz heitir “siloxine”, en það er unnið úr örþunnum kísilflögum, sem aðeins verða greindar í smásjá. Með flókinni vinnsluaðferð er “siloxin” blandað öðrum efnum, sem tryggja sterka bindingu bóngljáans við allar gerðir lakks. Eftir að bíll hefur verið bónaður með UltraGlozzi þá á sér stað efnahvarf, líkt og þegar 2ja þátta efnum er blandað saman. Samruninn við lakkið tekur ca. 12 - 36 tíma, allt eftir umhverfishita. Þannig myndar UltraGlozz níðsterka “glerbrynju” í yfirborði lakksins, sem ver það fyrir salti, útblásturssóti og öðrum óhreinindum.
Endist langt umfram venjuleg bón.
Ef bónað er reglulega með UltraGlozzi, þá er það staðreynd, að í rigningu perlar vel á vélarhlíf og þaki 6 mánuðum eftir að bónað var, ef um eðlilega þvottatíðni er að ræða. Einnig er áberandi hve auðvelt er að þrífa bílinn, sem er sönnun þess að varnarlagið er enn fyrir hendi. Þetta er í raun afar eðlilegt þegar haft er í huga hvernig vörn UltraGlozz er. Ef yfirborð lakks er skoðað í smásjá, þá er áferð þess svipuð hraunhellu. Hugsum okkur að við hellum eftirtöldum efnum, í fljótandi formi, á 3 slíkar hellur: Vaxi, akryl og gleri. Við storknun fá yfirborðin á sig slétta og fallega áferð. En hvað með endingu? Við hita bráðnar vaxið og gufar upp, rétt eins og öll vaxbón í sólskini. Vaxið þvæst auk þess auðveldlega af með tjöruleysi. Akryl þolir hitann mun betur, en þvæst engu að síður af með tjöruleysi. Glerið, í þessu tilfelli UltraGlozz, þolir hitann fullkomlega, auk þess sem það dregur verulega úr skaðlegum áhrifum útfjólubláu sólargeislanna, en þeir eru helsta orsök þess að lakk upplitast. Tjöruleysir vinnur ekki á UltraGlozz, þar þarf mun sterkari uppleysir. Þar með rætist draumur bíleigandans, um að glans og glæsilegt útlit geti endst mánuðum saman. Þetta geta menn sannreynt með því að þvo lítinn blett með tjöruleysi, t.d. á þaki, og fylgjast síðan með honum næstu vikurnar.
Létt í notkun.
Í íslenskum leiðbeiningum á bónbrúsanum kemur fram að létt er að bóna með UltraGlozz. Á nýlega, og nýlakkaða bíla, er bóninu nuddað létt á allan bílinn, látið þorna og síðan þurrkað af með hreinum klút. Í bóninu er örlítill hreinsimassi, þó ekki slípimassi, heldur samskonar massi og notaður er í tannkrem, sem auðveldar að þrífa skordýraleifar, fugladrit og þess háttar af bílnum. Hreinsimassinn er það fíngerður, að engin hætta er á, að hann skaði nýtt og viðkvæmt lakk. Þegar bónað er, þá er gott að hafa tvö atriði í huga: 1) Að hitastigið sé ekki undir 5o C. Það tekur bónið mjög langan tíma að þorna við þær aðstæður. Almennt gildir, að bestur árangur næst með því að bíllinn sé í 10 - 20o C, meðan bónað er.
2) Í sterku sólskini er atriði, að bíllinn standi í skugga. Þetta á reyndar við um öll bón. Hægt er að bóna valda fleti með UltraGlozz (t.d. frambrún vélarhlífar, þaks og neðri hluta á hurðum og brettum) og byggja þannig upp sterka varnarhúð. Milli umferða verða þó að líða lágmark 3-4 dagar. Nýtt lag bætist ofan á það sem fyrir er, en leysir það ekki upp, eins og gerist með önnur bón. Þetta er ekki mögulegt með vaxbónum, og gagnast þeim vel, sem nýta sér þjónustu þvottastöðva að staðaldri.
Reynsla.
Reynslan sýnir, að þeir sem kynnast kostum UltraGlozz bónsins, taka mikilli tryggð við það. Skýringin er einföld- það virkar – svo fremi að farið sé eftir leiðbeiningum um notkun. Fjöldi atvinnubónara halda því fram að þetta sé lang endigarbesta handbónið á markaðnum.
Í vetrarakstri er áberandi hve lítil tjara sest á bíla, sem bónaðir eru með UltraGlozz, auk þess sem auðveldara er að ná henni af. Þeir sem til þekkja, vita að helsti ókostur vaxbóns er, hve mikil tjara vill setjast í vaxið. Til þess að ná tjörunni af, þarf síðan að þvo með tjöruleysi, sem jafnframt þvær vaxið af. Þessi vítahringur er úr sögunni með notkun UltraGlozz. Miðað við endingu er UltraGlozz ódýrasta bónið á markaðnum.